Elín
Fótboltafélagar
Myndasíður
18.09.2006 22:51:20 / elinbet

ég er hætt !

þið fáu sem lesið þetta þá vildi ég bara segja:

ég er hætt að blogga !!!! ég nenni þessu ekki lengur.

hef aldrei frá neinu merkilegu að segja, og finnst þetta ekkert vera neitt skemmtilegt. svo eru ljótar myndir þarna efst sem ég kann ekki að taka í burtu, kann ekkert á þetta drasl !! :S

ég er byrjuð í skólanum alveg á fullu. nóg að gera. getið skoðað hvað er að gerast hjá bekknum mínum ef þið viljið: blog.central.is/the-a-people :)

en annars þá er ég bara farin.

lifið heil. og fucking enjoy ur life !!!! :D

p.s allir að kvitta undir á stop.is !!!!!!!!!!!!!!!!! reynum að minnka umferðarslysin. frænka mín er ein af þessum 20 sem eru dáin. blessuð sé minnig hennar.

FARIÐ VARLEGA !!

kv. elín

ég í ungverjalandi að borða gúllassúpu


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.09.2006 09:55:02 / elinbet

aðeins 2 dagar eftir.

jæja nú styttist óðum að ég komi aftur heim á klakann. kem heim á þriðjud. 5.sept. afmælisdegi Halldóru :)

þetta er nú búin að vera rosa fín ferð. reyndar búin að lenda í ýmsu. keyrðum í 7 tíma til Króatíu, og það var nú ekki þess virði, allt miklu dýrar en hérna í ungverjalandi. Við fórum í siglingu sem tók heilan dag, já haldið ekki að við höfum bara lagt af stað í þrumum og eldingum, brjáluð rigning og rok og ég varð otla þvílíkt sjóveik og ældi :S svo stoppuðum við á einum stað í 2 tíma og ég ætlaði bara að taka rútuna heim, var ekki að meika þetta, en svo lagaðist veðrið og sólin kom og ég ákvað þá að fara á bátnum heim og var heimleiðin miklu betri :D  svo næsta dag þá varð ég þvílíkt bitin og fékk eitthvað ofnæmi fyrir bitinu og þurfti að fara uppá slysó og fékk sprautu í rassinn :S :S þetta var nú meiri ferðin :D ég ætla ekki til króatíu á næstunni. bara til Nikla en það er bærinn sem inger á hús í, þetta er sko minnsti bær sem ég veit um :) en samt voða fínn :D 

ég og mamma fórum svo á föstud. með rútunni til Budapest, kl 6 um morguninn. fórum beint í west end en það er stæsta moll í evrópu. þeyttumst þar um í 5 tíma og tókum svo rútuna aftur heim, alveg búnar á því :) 

þetta er búið að vera rosa fín ferð. ekki mikið um sólbað, aðallega að fara á markaði og í búðir með kellingunum :D :D

en nú fer alvara lífsins að taka við, kem heim kl 23 á þriðjud. og svo er það bara skólinn kl 8:30 á mið. en ég er farin að hlakka soldið til að byrja í skólanum :)

við sjáumst þá bara á klakanum, verið þið sæl !

Elín

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 18:22:58 / elinbet

kveðja frá ungverjalandi :)

jæja kominn timi á að blogga, komið nóg af þessum flottu módel myndum, er hérna í nikla í ungverjalandi, búið að vera voða fínt, reyndar búin að vera að eyða soldið tíma í að ferðast, ætluðum að fara til króatíu í gær en sáum að það tæki 14 tíma í lest 8| þá hættum við við, ætum að keyra á föstud. það tekur bara 4-5 tíma. :)

á sunnud köldi vorum við í budapest, það var eiginlega þjóðhátíðardagur þeirra. fórum á markað, svo um kvöldið þá silgdum við niður dóná og horfðum á flugeldasýningu, svo allt í einu kemur voða mikið rok og brjáluð rigning og haglél, veðrið varð allt í einu kreisí !!! og yfir 300 þúsund manns að horfa á, við meira að segja klesstum á annað skip, 8|  þetta var alveg rosalegt,´það dóu 4 manns og einhverjir eru týndir, og 150 manns slasað á sjúkrahúsi. þegar við fórum af skipinu sáum við ljósastaru dottnir niður svo líka tré og allt í rúst. sem betur fer vorum við á skipinu, annars hefði hvað sem er geta komið fyrir okkur. þannig að þið sem lásuð fréttirnar þá er allt í lagi með mig :D

hef ekki verslað mikið, bara 2 bikini :D:D en jæja segi ykkur eitth vað meira seinna, er farin að borða kjúlla og drekka hvítvín sem kostaði 100 kr :) p.s 2 bikiní kostar 1300 kr :D fyndið hvað altt kostar lítið :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.08.2006 08:24:15 / elinbet

America's Next Top Model

Í tilefni af því að síðasti þáttur ANTM var sýndur um daginn þá keama hér myndir af nokkrum keppendunum í Icelandics Next Top Model þættinum sem mun hefja göngu sína í kvöld á Skjáeinum.

Heyrst hefur að fyrsta "challenge-in" hafi verið æsispennandi en hún fór fram í Smáralindinni ekki fyrir svo löngu. Keppt var í því að finna "outfit" fyrir djammkvöld á innan við hálftíma og má segja með sanni að útkoman hafi verið ansi misjöfn :lol: 

Ef þið viljið ekki vera "út úr" í kaffistofuumræðunum í fyrra málið þá mæli ég eindregið með því að þið stillið inn á Skjáeinn í kvöld og fylgist með framtíðar fyrirsætum okkar etja kappi við hvor aðra!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

06.08.2006 17:02:35 / elinbet

whats going on !!??

það er bara allt að gerast hérna, ELÍSABET byrjuð að blogga !! ekki slæmt !! :D

jæja nú er bara kominn sunnudagur og verslunarmanna helgin alvega að ljúka. ég fór uppí sumarbústað með elísabetu og Bjarna og vinum hans á föstud. það var nú bara mjög fínt. það var bara drukkið, borðað, chattað og spilað fatapóker, loksins búin að læra póker ! :)

í gær var svo bara djammað í bænum, sem var bara mjög skemmtilegt ! :D veit ekki alveg hvort ég fari að djamma í kvöld, á nú til eina hvítvíns flösu, en ætla aðeins að sjá til, þarf nú að fara að spara aðeins, er nottla að fara út eftir 10 DAGA !!! kreisí !!! :D fer á afmælisdeginum mínum :)

jæja ætla að leggja mig aðeins !

vonandi eru þið búin að hafa það gott um helgina !!

kv. ella


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.08.2006 12:02:38 / elinbet

Hver er sætust?!?!?!?!?!?!

Smá æla í tilefni dagsins ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.08.2006 23:43:11 / elinbet

versló..

nú var ég að koma heim af pöbbarölti,, það sást greinilega að þetta var fimmtudagur fyrir verslunarmanna helgina. því ekki voru margir í bænum. þetta var samt alveg ágætt :)

nú er ég ekki að fara á þjóðhátíð, :^) :( :cry: ég sem hef farið síðustu 4 árin og finnst mér það mjög sorglegt. var samt alveg sama í júní og til miðjan júlí, en núna síðustu daga hef mig langað svo mikið ég er alveg að deyja. sérstaklega eftir að ég fékk smá money frá skattinum :D svo eru líka allir að fara til Akureyrar, en ég er bara að fara uppí sumarbústað yfir eina nótt. :(    kannski er það bara ágætt, þá get ég sparað soldið og get þá eytt meira útí ungverjalandi :D

er núna alveg komin með ógeð af vinnuni, er engan veginn að nenna þessu, væri miklu frekar til í að hanga fyrir farman tölvuna í skrifstofuvinnu allan daginn.

jæja ég er hætt að tuða. gugga og þið sem eru að fara á þjóðhátíð eða aðra útihátíð, góða skemmtun og gangið hægt um gleðinnar dyr.

kv. elín


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.07.2006 23:13:29 / elinbet

nokkur heilræði

Heilræði Móður Teresu:

   “Fólk er oft ósanngjarnt, óskynsamt og eigingjarnt:
~ Fyrirgefðu því, þrátt fyrir það.

   Ef þú sýnir öðrum góðvild, mun fólk hugsanlega ásaka þig
   um sjálfselsku og annarlegar hvatir:
~ Sýndu öðrum góðvild, þrátt fyrir það.

   Njótir þú velgengni munt þú eignast einhverja falska vini og raunverulega óvini:
~ Stefndu að velgengni, þrátt fyrir það.

   Heiðarleiki og hreinskilni geta gefið höggstað á þér:
~ Vertu heiðarleg(ur) og hreinskilin(n), þrátt fyrir það.

   Það sem tekur þig mörg ár að byggja upp, gæti einhver eyðilagt á einum degi:
~ Byggðu upp, þrátt fyrir það.

   Það góða sem þú gerir í dag, gleymir fólk oft á morgun:
~ Haltu áfram að gera góðverk, þrátt fyrir það.

   Þótt þú gefir heiminum það besta sem þú átt, verður það aldrei nóg:
~ Haltu áfram að gefa heiminum það besta sem þú átt, þrátt fyrir það.

   Sjáðu til, þegar allt kemur til alls, er þetta á milli þín og Guðs:
~ Það var aldrei á milli þín og þeirra, þrátt fyrir allt.”


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.07.2006 23:12:12 / elinbet

bleble..

ég er nú eiginlega hætt að blogga, hef ekki frá neinu merkilegu að segja, er núna í sumarfríi og geri ekki neitt nema að hanga og djamma. fór meira að segja á djamm á miðvikud. er orðinn annsi mikill djammari :S ætli það sé ekki djamm næsta laugard. svo kemur verslunarmanna helgin, þá er maður að spá í að fara í sumarbústað og ætli það verði ekki smá djamm þar líka, svo gæti verið að ég haldi eitthvað smá afmæli helgina eftir það, á nefnilega afmæli á mið ( 16. ágúst) svo er ég bara farin til Ungverjalands og Króatíu 17. ágúst :) með múttu og einhverjum frænkum, :D orðin soldið spennt. kem heim 5. sept :D:D þá er maður bara byrjaður í skólanum :) ég er nú líka bara farin að hlakka til þess :)

jæja ætla í sturtu, vorum nokkrar á leiknisgrasi í bolta, mjög skemmtilegt :) ætlum að reyna að hafa þetta vikulega, ef einhver hefur áhuga að koma í smá spark ( þarf samt að kunna smá í fótbolta, bara pínku :) ) þá erum við með bloggsíðu www.blog.central.is/leiknisgellur endilega kíkið á það og commentið ef þið viljið vera með. p.s þetta er samt ekkert leiknisstelpur, bara stelpur sem finnst gaman að sparka í bolta :D


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 17:09:02 / elinbet

djamm djamm djamm !!

ætli sé ekki kominn tími á smá blogg :D maður er farinn að blogga bara aðra hverja viku. samt er maður næstum á hverjum degi á netinu :S ekkert nema leti !! allavega..

siðasta helgi sem sagt (helgin 10-11. júní) var stelpu djamm á laugard. sem var rosalega skemmtilegt. var heima hjá Guggu uppí hafnarfirði og vorum við bara að spjalla og drekka, mög gaman þar sem maður hefur ekki djammað LENGI með tvibbunum :D kíkti aðeins í valsparty sem var líka í hafnarfirði og var mjög gaman að hitta aftur stelpurnar. :D við fórum svo í bæinn á hverfis og skemmtum okkur rosa vel, mikið dansað :) þetta var mjög skemmtilegt kvöld, og hlakka ég til að fara aftur á djammið með þessum stelpum :D:D

svo nú á föstud. þá fór ég til Karenar og vorum við þar að spjalla og drekka, kíktum svo í bæinn á Kaffibarinn og Hverfis. og það var líka bara mjög gaman !! :D:D svo í gær svaf ég mest allan daginn en kíkti aðeins út um kvöldið. mér fannst ekki annað hægt en að fara í bæinn á 17. júní :) en var bara stutt. kom heim um 3 :)

Næsta vika er svo bara 3 vinnudagar þar sem Seb minn er að koma :D:D:D mjög gaman !! kemur á mið. og fer á mánd. og ég er búin að fá frí á fim og föst :) þetta var bara ákveðið á mið síðasta. því þetta er eina helgin sem við getum hist í allt sumar :( :S 8| ekki mjög skemmtilegt. og ég mæli ekki mikið með fjarsambandi :S en ég reyni að meika 2 mánuði. svo er maður bara fluttur út :D en helgin verður mjög skemmtileg. ætlum út að borða, horfa á frakkaleikinn og förum í útskrift hjá elísabetu á laugard. svo bara chill :D:D 

jæja ætla að fara að horfa á seinnihálfleik á ÍSLAND-PORTÚGAL kvenna áfram ísland !!!!!

Vá hvað það var líka gaman að horfa á handbolta leikinn í gær. geðveikt að slá Svía út :D:D

er farin bæjó. kv elín


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.06.2006 16:56:24 / elinbet

hvítasunnuhelgin

þá fer þessi langa helgi að ljúka. Hún var nú alveg ágæt :) á föstud. fór ég með Völu, Dísu og Naomi  á háskólaplanið þar sem tropic tónleikarnir voru, fórum samt ekki á tónleikana, vorum bara að drekka og spjalla í veitingatjaldinu. það var bara alveg ágætt. fórum svo niðrí bæ á nokkra staði. þetta car bara alveg ágætt kvöld :D síðan á laugard. fór ég með völu og Guðrúni Hlín á austurvöll og í kolaportið það var nefnilega svo gott veður. kíkti svo í bæinn um kvöldið með stelpunum og það var bara svona ágætt. :D ég og Halldóra fórum svo í gær uppí sveit til Ingerar frænku og gistum þar í sumarbústað. voða fínt og afslappandi :) :)

nú er bara enn ein vinnuvikan að byrja aftur, samt mikill munur að það sé bar 4 dagar í staðinn fyrir 5 :D:D er að fara í stelpuparty á laugard. og er orðin rosa spennt, er að fara að djamma með slepum sem ég hef ekki djammað með lengi :) þannig að það verður geðveikt gaman !!! :) Oddny er líka að koma heim á morgun og svo kemur Elísabet á fimmtud. :D get ekki beðið. !!

það er nú ekki mikið meira að frétta, nema að Seb á afmæli í dag og vil ég óska honum til hamingju með afmælið þó svo hann eigi ekki eftir að lesa þetta :) Hann er 24 ára í dag og vildi ég óska þess að ég gæti eytt afmælisdeginum hans með honum, en svona er þetta. því miður þá getur maður ekki gert allt sem maður vildi. vonandi þá bara næsta :D

jæja ætla aðeins að leggja mig áður en ég fer að taka til. bæjó.


» 6 hafa sagt sína skoðun

31.05.2006 22:29:50 / elinbet

Aftur á klakanum :(

þá er maður kominn aftur á klakann :( fór til london síðasta miðv. á fimmtudeginum var farið að skoða leikskóla þarna úti, og var hann frekar mikið öðruvísi en hérna á íslandi :) allt miklu opnara og frjálslyndara :) eftir það fórum við á personal dolls training námskeið, hjá einni 75 ára gamallri konu sem var rosa hress :) og það var bara mjög skemmtilegt við fórum svo að á kínverskan veitingastað um kvöldið og ég fór svo að hitta Seb og gisti hjá honum, :D vaknaði svo ágætlega snemma og fór að versla, verslaði samt ekkert mikið, fann eiginlega ekki neitt :S fórum svo aftur út að borða og ég fór svo og gisti aftur hjá seb, nennti ekki á djammið. hékk svo mest megnis með seb á laugard, fyrir utan smá verslunarleiðangur. og við fórum svo saman út að borða, svo fór ég bara með fyrri vélinni heim á sunnud :( þetta var rosa fín ferð þótt hún hefði mátt vera aðeins lengri. :)

svo er ekkert spennandi sumar framundan, er örugglega ekkert að fara til útlanda :( :( :cry: og verð bara að vinna. en ég er að fara að flytja í haust, svo ég hlýt að meika eitt sumar :D vonandi fer veðrið að skána og sólin að skína :D

nú er löng helgi framundan :D:D:D ætla eiginlega bara að chilla og hafa það notarlegt :) Vala hvað segiru um góðan mat á laugard kannski risarækjur og hvítvín ;) og eitthvað slúður :D 

Dísa það var mjög fyndið að sjá þig þarna á lestarstöðinni, ótrúlrgt að við skyldum "hittast " þarna, :D :D: D nennti ekki á djammið á föstud. en það verður sko tekið á því í haust. þá höfum við nægan tíma í djamm :D:D marga mánuði!! ooohhhh hvað verður gaman !!!! er að verða soldið spennt !!!!

lov u all !!!!!!! :* :* :*


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 21:48:01 / elinbet

júróvision á morgun !!

góðan og blessaðan daginn!

síðasta helgi var bara eitt stórt DJAMM !! á föstudeginum fór ég í party með Oddnýju, hún var að klára prófin og ég fór með henni í bekkjarparty, svaka stuð. var ekki komin heim fyrr en um 6.:) fór svo til Dísu á laugard. og þaðan fórum við í svaka garðparty hjá Atla Bolla og var svaka stuð, geggjað skemmtilegt trampólín :D kíkti svo á HSí ballið sem var reyndar frekar slappt, fór svo í bæinn og sofnaði kl 7 8| á sunnudeginum fór ég svo í skírn hjá Diddu og var litla baun skírð Embla Guðný :D mjög fallegt nafn :) Til hamingju með nýja nafnið !!

nú er maður bara búinn að vera að vinna, horfði áðan á ARSENAL-BARCELONA, því miður þá töpuðu mínir menn, eftir rosalegan leik og mikla baráttu, þeir hefðu nú alveg átt skilið að vinna, reyndar fór dómarinn á kostum, þeir eiga samt hrós skilið, stóðu sig geðveikt vel eftir að hafa verið manni færri í næstum 80 min ! en svona er þetta. ...það fer sem fer, lífið heldur áfram...kannist ekki við þessa setningu, :D hún er góð :D

en nú er bara önnur kreisí helgi að nálgast ! nottla júróvision á morgun ! og ég auglýsi eftir partyi!!!! 8) eitthvað stelpuparty á föstud. sem ég reyndar veit ekki alveg um, og svo aftur júróvision á laugard :D geggjað stuð, ætla líka að klippa mig og kannski lita hárið á laugard. auglýsi líka alveg eftir uppástungum ! Vala ekki samt segja geggjað stutt eins og í 9. bekk :D  jæja ætla að láta þetta gott heita.

p.s Velkomin heim Vala :D :D

p.s.s Arsenal tekur bara bikarinn eftir ár :D

henry_arsenal_salute_d

plís ekki fara til Barcelona sæti !! :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.05.2006 19:47:38 / elinbet

myndir :)

ákvað að skella inn þreumur myndum :)

hérna er ég eins og 10 ára stelpa að halda á sætustu stelpu í heimi, litlu baun :D  og hún er 1 vikna gömul :D

oo aðeins að geyspa, fannst soldið þreytandi að vera hjá elísabetu ;) en flott brjóst elísabet :D

jéé hvað ég er sjúskuð :) var sko að koma úr sundi :D en þarna er hún 2 vikna gömul. og hún nottla svaf eins og engill eftir að ÉG gaf henni að borða, sko úr pela :D manni langaði bara að kreista hana, hún er svo mikið krútt :) hlakka til að koma aftur í heimsókn didda, stóð ég mig ekki vel :D :D


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.05.2006 18:44:34 / elinbet

skemmtilegar staðreyndir :)

  1. TYPEWRITER er lengsta orðið sem er hægt að skrifa með bara einni línu á lyklaborðinu.
  2. Marilyn Monroe var með sex tær á vinstri fæti.
  3. Árlega deyja um 100 manns af völdum kúlupenna.
  4. Þegar Coca Cola kom fyrst, þá innihélt það kókaín og var grænt á litinn.
  5. 40% af hagnaði McDonald's fæst með sölu barnaboxa.
  6. Það eru meiri líkur á að þú munir deyja af völdum korktappa úr freyðivínsflösku en af köngulóarbiti.
  7. Bandarísk flugfélög týna samtals 200 töskum á meðaldegi.
  8. Yngsti páfi sögunnar var 11 ára.
  9. Mest notaða lykilorð í sögu upplýsingatækninnar er "password".
  10. Kengúrur geta ekki gengið aftur á bak.
  11. Fiðrildi finna bragð með fótunum.
  12. Þegar maður hnerrar þá þenst munnurinn á manni út á yfir 1000 km hraða.
  13. Flær geta stokkið 350-falda lengd sína. Fyrir mann væri það eins og að stökkva yfir heilan fótboltavöll.
  14. Á meðaldegi slasast 40 manns á trampolíni.
  15. Í flestum klukkuauglýsingum er klukkan 10:10.
  16. Það eru 1.792 þrep í stiganum í Eiffel turninum.
  17. Búnaðurinn sem notaður er á flugmóðurskipum til að koma flugvélunum í loftið gæti fleygt vörubíl tvo kílómetra.
  18. MTV fór fyrst í loftið á miðnætti þann fyrsta águst 1981. Fyrsta myndbandið var "Video Killed the Radio Star" með Buggles.
  19. Hægra lunga mannsins getur geymt meira loft en vinstra lungað.
  20. Risakolkrabbar hafa stærstu augu í heimi.
  21. Í Los Angeles eru fleiri bílar en íbúar.
  22. Aðeins 55% Bandaríkjamanna vita að sólin er stjarna.
  23. Á Nýja Sjálandi eru um 70 milljónir kinda en 4 milljónir manna.
  24. Lengsta eins atkvæðis orðið í ensku er "screeched".
  25. Sumar tegundir af gervirjóma eru eldfimar.
  26. Efnablandan í dýnamíti inniheldur meðal annars hnetur.
  27. Það er til PEZ með kaffibragði.
  28. Þrjár stærstu blaðaútgáfur heims eru Rússneskar.
  29. Stærstu korktappaframleiðsluríki heims eru Spánn, Portúgal og Algeria.
  30. Á löglegri golfkúlu eru 336 dældir.
  31. Nútímamaðurinn hefur minni heila en Neanderdalsmaðurinn hafði.
  32. Græna kortið, sem Útlendingaeftiriltið í Bandaríkjunum gefur út, hefur ekki verið grænt síðan 1964.
  33. Bandaríkjamenn borða yfir 7 hektara af Pizzum á dag.
  34. Kattahland glóir í blacklight.
  35. Meðalmaðurinn er 7 mínútur að sofna á kvöldin.
  36. Meðalmaður hlær 15 sinnum á dag.
  37. Konur blikka augunum nærri tvöfalt oftar en karlmenn.
  38. Kettir hafa 32 vöðva í hvoru eyra.
  39. Á World Trade Center voru 43.600 gluggar.
  40. Krókódílar geta hvorki hreyft tunguna né tuggið. Meltingarkerfi þeirra getur þó melt stálnagla.
  41. Fjórðungur Bandaríkjamanna vita ekki í hvaða stjörnumerki þeir eru.
  42. 68% Bandaríkjamanna sem horfa á auglýsingar frá örgjörvaframleiðendum halda að betri örgjörvi auki hraðann á internettengingu þeirra. Það er rangt.
  43. Í Ohio er ólöglegt að veiða mýs án veiðileyfis
  44. Ein af hverjum 3 kúm í Bandaríkjunum enda sem McDonalds hamborgarar.
  45. Einn af hverjum 2.000.000.000 jarðarbúum nær 116 ára aldri
  46. 70% Bandaríkjamanna hafa komið í Disney World
  47. Fyrsti eigandi Marlboro sígarettuverksmiðjanna dó úr lungnakrabba.
  48. Stærsti skóli heims er barnaskóli á Filippseyjum. Þar eru um 25.000 nemendur.
  49. Allar klukkur í myndinni Pulp Fiction eru alltaf stilltar á 4:20.
  50. Meirihluti alls ryks í heimahúsum er myndað úr dauðu skinni.
  51. 40% kvenna hafa fleygt skófatnaði í karlmenn.
  52. Á fjórða áratug nítjándu aldar var tómatsósa seld sem meðal.
  53. Það er hlutfallslega meira af óbyggðum svæðum í N-Ameríku en Afríku.
  54. Langa sms hljóðið í Nokia farsímum er morse kóði sem merkir "SMS" (··· -- ···)
  55. Minnsta leðurblaka í heimi vegur minna en tíkall.
  56. Það eru fleiri kjúklingar en menn í heiminum.
  57. Ef gullfiskur er hafður í myrkri þá verður hann á endanum hvítur.
  58. Í New York eru 25% líkur á hvítum jólum
  59. Annar hver unglingspiltur vill frekar vera ríkur en klár.
  60. Einn af hverjum 4 Bandaríkjamönnum hafa sést í sjónvarpinu.
  61. Í Ástralíu eru um 150 milljónir kinda en 17 milljónir manna.
  62. Meðalmaður ýtir þrisvar sinnum á "snooze" takkann á vekjaraklukkunni sinni á hverjum morgni.
  63. Mikki mús fékk yfir 800.000 aðdáendabréf árið 1933.
  64. Tveir af hverjum 5 jarðarbúum búa á Indlandi eða í Kína
  65. Kettir geta myndað yfir 100 mismunandi hljóð.
  66. Það eru að meðaltali 178 sesamfræ á einum Big Mac
  67. Það er ólöglegt að fara yfir landamæri Minnesota með önd á hausnum.
  68. Meðalmaður í vestrænum ríkjum flytur á sjö ára fresti.

  69. Maður brennir 150 kaloríum á klukkustund við að berja hausnum í vegg.
  70. Í Carnegie Mellon háskólanum er boðið upp á sekkjapípuleik sem aðalfag.
  71. Einn af hverjum átta Bandaríkjamönnum hafa einhverntíma unnið fyrir McDonalds.
  72. Háskólinn í Calgary býður upp á 2ja daga námskeið í byggingu snjóhúsa.
  73. Meðalbarn notar 730 mismunandi vaxliti fyrir 10 ára aldur.
  74. Fyrirmyndin að fyrstu skíðalyftu í heimi var tæki sem hleður bönunum í flutningaskip.
  75. 7% Bandaríkjamanna segjast borða á McDonalds á hverjum degi.
  76. Ísbirnir eru örvhentir
  77. Meiri ljós háralitur er seldur í Dallas en nokkri annarri borg.
  78. Andrés Önd var bannaður í Finnlandi því hann gekk ekki í buxum. Andrés er önd.
  79. Á hverju ári deyja um 13 manns með því að verða undir sjálfsala.
  80. Flestir Amerískir bílar flauta í tóninum F.
  81. Stærsti rúllustigi í heimi tilheyrir Leningrad lestakerfinu í rússlandi og er hæðarmunurinn 60 metrar.
  82. Blár er uppáhaldslitur 80% bandaríkjamanna.
  83. Í Kaliforníu hafa verið gefin út 6 ökuskírteini á nafnið Jesus Christ.
  84. Það er ekki hægt að hnerra með opin augun.
  85. Átjánda þekktasta lykt í heiminum er lyktin af vaxlitum.
  86. Reykingar eru vinsælasta umfangsefni tölfræðirannsókna.
  87. Winston Churchill fæddist á dansleik
  88. Flugfélagið American Airlines sparaði 40.000 bandaríkjadali á árinu 1987 með því að sleppa einni ólífu úr hverju salati sem var borið fram á fyrsta farrými.
  89. 10% af tekjum rússneska ríkisins fást með vodkasölu
  90. Fyrsta vörutegundin til að vera strikamerkt var Wrigleys tyggjó.
  91. Mörgæsir geta stokkið 2 metra upp í loftið.
  92. Sumar tannkremstegundir innihalda frostlög.
  93. Á hverju ári slasast um 8.000 manns af völdum tannstönglanotkunar.
  94. Ef Bandaríkjamenn myndu minnka kjötneyslu sína um 10% og sparnaðinum yrði varið í hrísgrjón og sojabaunir þá myndi það duga til að brauðfæða 60 milljón manns, sem er fjöldi þeirra sem deyja úr hungri árlega.
  95. Kakkalakkar geta lifað í 9 daga afhöfðaðir en eftir það deyja þeir úr hungri.
  96. Í hverjum þætti af Seinfeld má sjá orðið "Superman" og/eða mynd af ofurhetjunni.  
  97. Helmingur jarðarbúa er innan við 25 ára.
  98. Snigill getur sofið í þrjú ár samfellt.
  99. Örbylgjuofninn var fundinn upp þegar vísindamaður gekk fram hjá radarsendi og súkkulaðistykki bráðnaði í buxnavasnum hans.
  100. Ef monopoly er spilaður án þess að neinn leikmaður kaupi neitt þá endar leikurinn á því að bankinn fer á hausinn.
  101. Móðir Adolfs Hitlers hafði velt því alvarlega fyrir sér að láta eyða fóstrinu en læknirinn fékk hana til að hætta við.
  102. Á þriggja mínútna fresti er tilkynnt um fljúgandi furðuhluti. Líklegast er að sjá þá í júlí, klukkan 3 að nóttu eða 9 að kvöldi.
  103. Mohammed er algengasta nafn í heimi
  104. Það eru 1.575 þrep í stiganum upp að efstu hæð Empire State byggingarinnar.
  105. Maður brennir fleiri kaloríum sofandi en horfandi á sjónvarp.
  106. Karlmenn geta lesið smærra letur en konur, en þær heyra betur.
  107. 7% Bandaríkjamanna halda að Elvis sé enn á lífi.
  108. Franskar kartöflur spanna þriðjung af kartöflusölu í heiminum.
  109. Flest innbrot í hótelherbergi eru framin á annari til sautjándu hæð.
  110. Ostrur hafa stærri augu en heila.
  111. Enginn fékk friðarverðlaun Nóbels árið 1972.
  112. Líkurnar á því að verða fyrir eldingu einhverntíma á ævinni eru 1 á móti 600.000.

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4